Ferming í aðalhlutverki – en plan sem virkar fyrir allar stórar veislur

Hagnýtur leiðarvísir fyrir undirbúning fermingar og annarra veisluhalda. Tímalína, pantanir, skraut, matur, hugmyndir og skipulag sem léttir stressið.

Hannzla

2/19/20265 min lesa

Ferming er fyrir marga fyrsta „stóra dagurinn“ sem barn upplifir – og oft fyrsta stóra verkefnið sem foreldrarnir þurfa að plana sjálf með mis miklum áhrifum frá fermingarbarninu sjálfu. Skyndilega þarf að finna sal, ákveða mat, pantanir, skraut, tónlist, dagsskrá… og auðvitað passa að allir séu glaðir, sattir og hafa nóg af servíettum.

Í þessari færslu fer ég yfir hvenær er gott að byrja á hverju, hvað gæti verið sniðugt að hafa í huga sem þarf að panta, og gefa þér nokkrar hugmyndir að mat, drykk og skemmtun.
Og já – þó að fermingin sé í sviðsljósinu hér, þá virkar þetta plan frábærlega líka fyrir brúðkaup, afmæli, skírn eða önnur merkileg veisluhöld með örlítilli áherslu breytingu.

Þá er ekki eftir neinu að bíða, við skulum henda okkur í fyrsta skrefið í undirbúningnum að velheppnaðri veislu!

Tímalína undirbúnings – hvenær á að byrja á hverju?

Það er enginn réttur eða rangur tími, en þessi tímalína er mjög þægileg fyrir flesta. Hún dregur úr stressi og kemur í veg fyrir að þú sitjir kvöldið fyrir veislu með blöðrur í annarri og hafragraut í hinni.

6–12 mánuðir fyrir veislu

  • Ræddu við fermingarbarn: hvernig veislu langar því í?

  • Veldu dagsetningarmöguleika og stemmingu.

  • Bókaðu sal (vinsælustu salirnir í Reykjavík fara fyrstu).

  • Hugmyndir að litum/þema spretta oft strax upp – skráðu allt niður.

Sama regla gildir í brúðkaupum og stórum afmælum: salurinn er oft flöskuhálsinn, svo byrjaðu þar.

3–6 mánuðir fyrir veislu

  • Panta veitingar: hlaðborð, kökur, smárétti eða allt í einu.

  • Ákvarða grófan fjölda gesta.

  • Bóka þjónustu ef þarf: ljósmyndara, DJ, hljóðkerfi, myndatöku o.s.frv.

  • Byrja skoða skreytingar (leiga, panta eða DIY?).

1–2 mánuðir fyrir veislu

  • Senda út boð – rafrænt eða pappír, bæði virkar vel.

  • Staðfesta veitingar og setja upp „hver kemur“ lista. Mæli með að kíkja inn á Þessa síðu til þess að reikna hveru mikinn mat þú þarft fyrir veisluna.

  • Panta skraut: Blöðrur, Blóm, Servíettur / dúkar , Leiguhlutir

  • Setja saman dagskrá: hvenær matur, ræðuhöld, myndasýning o.s.frv.

Vikan fyrir veislu

  • Staðfesta allar pantanir.

  • Prenta borðmiða, myndir eða dagskrá ef það á við.

  • Kaupa drykki, aukasnakk og allt sem gleymist gjarnan.

Dagurinn áður / dagurinn sjálfur

  • Skreyta sal eða ákveða hver gerir hvað.

  • Sækja veitingar eða hleypa veisluþjónustu inn.

  • Setja upp græjur, prófa hljóð, slide-show, playlistann o.s.frv.

  • Leyfa fermingarbarninu að taka þátt – þetta er þeirra dagur.

Hvort sem þú ert að plana fermingu, brúðkaup, skírn eða stórt afmæli – Þá er gott að hafa það í huga að margar hendur vinna létt verk. Það er ekkert að því að fá aðstoð og reyna að dreyfa verkefnunum. Það ásamt góðu skipulagi og yfirsýn, er uppskrift að mun stress-minni undirbúning og verður því ferlið allt talsvert skemmtilegra.

Mínar eigin fermingar – og það sem ég hef lært á leiðinni

Ég hef sjálf undirbúið þrjár fermingar – og nú er fjórða (og síðasta!) á næsta leyti. Þær hafa allar verið ólíkar, og ég hef lært helling um hvað skiptir máli… og hvað má alveg sleppa.

Fyrsta fermingin mín var fyrir stelpu og þar fór ég algerlega „all in“ enda fyrsta ferming og ég var orðin mjög spennt að setja saman glæsilega veislu. Ég byrjaði um það bil 1,5 ári fyrir daginn að kaupa skraut og dót smátt og smátt, og bætti svo alltaf einhverju við þegar nær dró.

Við pöntuðum sal með árs fyrirvara, með þjónustu (hún er á tímakaupi) , og útbjuggum glæsilegt pinna- og kökuhlaðborð þar sem við sáum um allar veitingar sjálf.

Skreytingar í bláu, hvítu og silfruðu sem kom virkilega vel út en það pöntuðum við allt erlendis frá ásamt fermingarfötunum, en það sparaði okkur heilan helling, Tala nú ekki um þar sem maðurinn minn er áhuga ljósmyndari og sá því um fermingamyndatökun - Þvílíkur  sparnaður!

Svo kom Covid og hristi allt upp: fermingunni frestað um hálft ár, fjöldatakmarkanir og sífelldar breytingar á plani. Þrátt fyrir að hafa „sparað“ með því að gera nánast allt sjálf, var þetta langdýrasta fermingin – og ótrúlega mikil vinna, stress bras á sjálfum veisludeginum.

Önnur fermingin var svo nánast andstæðan. Hún var haldin í Minigarðinum, þar sem við keyptum veitingarnar og ég keypti bara fermingartertu og kransaköku til viðbótar.

Það var ótrúlega vel sloppið fjárhagslega, ekkert undirbúningsstress og enginn frágangur eftir á. Þetta var lang þægilegasta veislan hingað til – ég gat í alvörunni notið dagsins með barninu í stað þess að vera alltaf á leiðinni í eldhúsið.

Sú þriðja varð svo smá blanda af þessum tveimur.

Við vorum í sal með þjónustu, um 80% af veitingunum voru aðkeypt og restin var gerð af okkur og með aðstoð fjölskyldu.

Við bættum við skemmtilegu „auka“ eins og myndavegg þar sem við vorum með blöðruboga í þemalitunum, nammibar, spurningalisti á öllum borðum um fermingarbarnið ásamt Goggur sem fékk fólk til þess að "mingla", krakkahorn og fleira.

Skreytingarnar voru glæsilegar – að mestu leyti endurnýtt frá fyrstu fermingunni þar sem bæði börnin völdu sama bláa litinn sem þema, svo þar sluppum við vel – en ég keypti líka fullt af nýju sem höfðaði meira til hans.

Veislan var eitthvað dýrari en númer tvö, en líka aðeins meira um sig og samt langt frá því að verða eins dýr og fyrsta fermingin.

Nú eru um tvö ár í fjórðu og síðustu ferminguna hjá okkur – og ótrúlegt en satt, þá er ég strax farin að hugsa út í hvernig ég get nýtt allt sem ég hef lært: hvað er þess virði að gera sjálf, hvað má alveg panta, og hvernig við getum haldið veislu sem er bæði falleg, hagkvæm og – mikilvægast af öllu – stresslaus og skemmtileg fyrir okkur öll.