Hvernig þú færð betri yfirsýn á fjármálin

Lærðu að halda einfalt heimilisbókhald, fá betri yfirsýn yfir fjármálin og spara meira.

2/28/20263 min lesa

a man riding a skateboard down the side of a ramp
a man riding a skateboard down the side of a ramp

Ertu búin(n) að fylgjast með þættinum „Viltu finna milljón?“
Þátturinn hefur hrist upp í rosalega mörgum – og minnt okkur á eitt:
Við vitum oft ekki hvar peningar okkar fara.

En þegar maður sér útgjaldahegðunina svona svart á hvítu, þá verður allt svo miklu skýrara.
Það er akkúrat það sem heimilisbókhald gerir – og það er allt annað en leiðinlegt þegar maður hefur góða yfirsýn og fín verkfæri.

Af hverju að halda heimilisbókhald?

  • Til að sjá hvar stærstu útgjöldin eru

  • Til að greina hvar hægt er að spara mikið án þess að fórna lífsgæðum

  • Til að sjá hversu mikið fer í raun í mat, samgöngur, veitingastaði, þjónustu o.fl.

  • Til að setja raunhæf sparnarmarkmið

  • Til að minnka fjárstreitu og auka stjórn

Þetta er bókstaflega ekki verkefni fyrir bókara, heldur bara fyrir fólk sem vill halda betur á sínum peningum.

En hvernig byrjar maður?

1. Taka saman útgjöld síðustu 1–3 mánuði

Margir fá strax sjokk þegar þeir sjá að:

  • „smá“ heimsóknir í bakaríið eru

    35–45.000 kr á mánuði

  • Veitingastaðir eru 80–120.000 kr

  • Appkaup og áskriftir 10–25.000 kr

Það þarf oft bara að horfa á tölurnar til að breyta hegðun.

2. Flokka útgjöld

Góðir flokkar eru t.d.:

  • Húsnæði - Leiga/lán

  • Matur

  • Samgöngur - Bensín /KM gjöld / strætó / Taxi

  • Veitingastaðir / afþreying

  • Reikningar og áskriftir

  • Heilsa og íþróttir

  • Ferðalög

  • Opinber gjöld

  • Annað

Því einfaldara sem þetta er – því líklegra að þú haldir áfram.

3. Nota einföld yfirlitsskjöl

Til að hjálpa þér að byrja þá mæli ég með Excel skjali sem ég fann á excel.is, sem inniheldur:

✔ Flokka
✔ Reiti fyrir tekjur
✔ Reiti fyrir gjöld
✔ Góða yfirsýn á útgjöld og innkomu

Þú getur sótt skjalið hér 👉

Heimilisbókhald – yfirlitsskjalið

Þú getur fyllt það út mánaðarlega, vikulega eða eftir þörfum.
Eins og ég gerði þetta, þá byrjaði ég á því að fylla inn alla tekjuliði / útgjaldaliði um leið og ég vissi þá, ef ég vissi lengra fram í tímann þá fyllti ég það inn en breytti svo eftir þörfum hverju sinni.

Ég setti svo upp mánaðarplan (líka hægt að gera vikuplan ef það hentar betur) um hvað ætti að vera í matinn, fór í eina stóra verslunarferð og keypti allt sem ég gat hent í frystikistuna, dósamat / þurrmat og slíkt með langan líftíma og svo keypti ég brauð, mjólkurvörur og grænmeti fyrir komandi viku. Síðan dugar að fara alltaf 1x í viku til þess að fylla á það sem þarf af ferskvöru eins og grænmeti, ávextir, brauð og mjólkurvörur.

Eftir búðaferð eða önnur útgjöld, þá fyllti ég inn í skjalið.

Með þessu fyrirkomulagi, þá náðum við gríðarlegum árangri í að lækka útgjöld heimilisins. Matarkostnaðurinn varð mun lægri, þar sem óþarfa kaup sem laumast með í hverri búðarferð urðu talsvert færri með færri búðarferðum en einnig tókum við eftir ýmsum "þúsundköllum" sem við vorum að kasta frá okkur í hinar og þessar óþarfa áskriftir sem við vorum ekkert að nýta okkur.

Ég tók langa pásu frá þessu hjá okkur og nú er klárlega kominn tími á að taka þetta föstum tökum aftur! Ég ætla að taka fjármálin í nefið ! Mars mánuður er fyrir mánuðurinn og ég stefni á að fara í smá átak fram að sumrinu a.m.k. Segjum Mars, Apríl og Maí - Svo er spurning hvort ég haldi áfram, hver veit nema að ég sjái það mikinn mun að ég fari bara ekki til baka.

Það fyrsta sem ég þarf að gera núna er að taka saman hvernig við fórum með fjármálin í Janúar og Febrúar, og gera betur í Mars ! Ég skora á þig til að gera það sama

5 Ráð til að spara án þess að fórna lífsgæðum

1. Matarkostnaður
Skipuleggja viku / mánuð, Gera innkaupalista og þú fækkar búðarferðum
Auðveldur sparnaður upp á 20–90.000 kr á mánuði, fer eftir stærð heimilis.

2. Veitingastaðir / Bakarí / Annar skyndibiti
Setja „limit“ (t.d. 1 helgi í mánuði) → sparar meir en þig grunar

3. Samgöngur
Skoða hvort hægt sé að nýta ódýrari samgöngu, ganga / hjóla oftar og þar með fækka"óþarfa" bílferðum.

4. Áskriftir
Muna að hætta áskriftum sem maður notar Lítið /sjaldan/aldrei - Minnka jafnvel áskriftarleiðum ef það er möguleiki - t.d. Netflix , Dugar að borga fyrir ódýrasta eða þarf fleiri skjái? er verið að nota þetta svo mikið

5. Smáútgjöld
Snarl, Nesti, Lottó, bílastæði og margt fleira - Er hægt að gera betra skipulag til að koma í veg fyrir eitthvað af þessum "smá"útgjöldum?

Gangi þér vel með þetta skemmtilega og árangursríka verkefni ! Ef þú leggur þig 100% fram, þá munt þú sjá árangur , Ég er viss um það!