Skemmtileg barna / pre-teen afmæli
Leitar þú að skemmtilegum og skapandi hugmyndum fyrir barna- og pre-teen afmæli? Í þessari færslu finnurðu einfaldar og frábærlega skemmtilegar hugmyndir sem gerir afmælið eftirminnanlegt!
Hannzla
8/1/20254 min lesa
Það hefur orðið algengara síðustu ár að barnaafmæli – sérstaklega hjá eldri börnum – séu afgreidd með bíómyn, pizzu og smá snakki og svo er afmælið búið. Þetta er mikill viðsnúningur frá því sem margir muna frá eigin æsku (úff já aldurinn farinn að segja til sín), þar sem leikurinn var í fyrirrúmi, hvort sem það var úti í eina krónu, Dimmalimm, brennó og yfir, eða inni með stoppdans, flöskustút, pakkaleik og spurningaleikjum.
Eru það við fullorðna fólkið sem erum búin að missa þolinmæðina á að skipuleggja / Halda afmæli fyrir börnin, hugmyndaleysi hjá okkur/börnunum eða bara einhver þæginlegur ávani að henda í bíómynd?
Árið eftir, þá var farið að tala um það innan bekkjarins hvort það yrði aftur Halloween afmæli, en mig langaði ekki alveg að festast í því og lagði höfuðið aðeins í bleyti.
Hvað haldið þið að hafi komið út úr þeirri hugmyndavinnu ... Jú ég hélt Bekkjarleikana fyrir hópinn.
Bekkjarleikarnir voru með eftirfarandi hætti.
Þegar sonur minn varð 11 ára ákvað ég að breyta aðeins til og prófa eitthvað sem myndi skilja meira eftir sig. Hann á afmæli seint á árinu og tók ég því upp á því, að skipuleggja Halloween afmæli.
Ég fór All in .. ég skreytti bæði húsið að innan sem utan ásamt því að allar veitingar sem voru í boði, drykkir eða matur, all saman var tengt þemanu.


Svo bauð hann öllum úr bekknum í búninga afmæli. við fórum í krakka kviss, þar sem krökkunum var skipt upp í 2-3 manna lið og svo var verðlaun um besta búninginn. Niðurstaðan? Börnin töluðu um þetta afmæli allt árið – og sögðu þetta það skemmtilegasta afmæli sem þau hefðu farið í.
Það segir mér eitt: þau vilja meira en bara popp og bíó !




Krökkunum var skipt upp í 4-5 manna lið. Hvert lið átti að búa sér til nafn og svo var farið í að leysa hin ýmsu verkefni og þrautir, sem kröfðust samvinnu.
Ég mæli svo innilega með að prófa svona nálgun – hvort sem barnið er að verða 7, 10 eða 13 ára.
Það þarf bara að aðlaga þrautirnar að aldri og fjölda.
Ég hef einnig haft svona leikjaþrautir í vinnustaðahitting þar sem við erum að þjappa hópinn saman - Sló alveg jafn mikið í gegn þar.
Hér eru 3 þrautir sem ég hef noðað :


Við höfðum verðlaun fyrir vinningsliðið og viðurkenningu fyrir alla þátttakendur.
Keppnisskapið tók völdin – en allir voru hlæjandi og glaðir í lokin, og enn ein vel heppnuð skemmtun fyrir börnin!
Safna Bómullarhnoðrum:
Setur fullt af bómul á borðið, hvert lið velur sér einn meðlim sem þreytir þrautina. Bundið fyrir augun á viðkomandi og safnar svo bómullarhnoðrum í skál þar til hún er full (eða allir fylli eins marga og þeir ná á 1 mín. heildartala tekin svo saman fyrir liðið). hér er notast við sleif/spaða/skeið til þess að safna kúlunum og það má ekki nota báðar hendur.
Stigagjöf: 1 stig fyrir síðasta sætið, 2 stig fyrir næst síðasta og svo koll af kolli.
Blöðruhlaup
Hvert og eitt lið stillir sér upp í röð, hlið við hlið á stað "A". Á stað "B" eru svo blöðrur sem liðin eiga að safna/sækja, og er staðurinn u.þ.b. í 3m fjarlægð eða lengra frá stað "A"
- Fyrsti þáttakandinn byrjar á því að fara frá stað "A" til "B", sækir sér blöðru og fer til baka til síns liðs.
- Blaðran er svo sett fyrir aftan bak og liðsfélagi 2 stendur þétt upp að fyrsta þátttakanda til þess að halda blöðrunni á sínum stað (bannað að nota hendur)
- Nú fara þessir 2 liðsfélagar saman að stað "B" og ná í aðra blöðru og koma sér til baka á stað "A" og sækja nýjan liðsfélaga.
Þetta heldur áfram þar til allir liðsfélagar hafa bæst við í halaróuna og með blöðru á milli sín.
ATH. Ef liðið missir blöðru, þá þarf að byrja upp á nýtt
Stigagjöf: 1 stig fyrir síðasta sætið, 2 stig fyrir næst síðasta og svo koll af kolli.
Fylltu á glasið
Hvert og eitt lið stillir sér upp í röð, hlið við hlið á stað "A" Þar sem er skál/kanna full af vatni og 1 matskeið, Fyrir hvert lið.
Á stað "B" eru svo tóm glös sem liðin eiga að safna vatninu í, og er staðurinn u.þ.b. í 3m fjarlægð eða lengra frá stað "A"
- Fyrsti þáttakandinn byrjar á því að setja vatn í skeiðina, halda svo á skeiðinni frá stað "A" til "B" og fylla á glasið og kemur sér svo til baka þar sem hann afhendir næsta liðsfélaga skeiðina og fer sjálfur aftast í röðina.
Þetta heldur áfram þar til liðið hefur fyllt glasið.
Stigagjöf: 1 stig fyrir síðasta sætið, 2 stig fyrir næst síðasta og svo koll af kolli.
Ég mæli svo með að kíkja á fleiri þrautir, en það sem ég hef leitað að þegar ég er að finna skemmtilegar hugmyndir er "minute to vin it games "
Góða skemmtun !
